Á Vísindagörðum blómstrar samfélag þar sem háskólar, fyrirtæki og rannsóknarstofnanir vinna saman að skapandi lausnum á helstu áskorunum samtímans.
Djúptæknisetur
Vísindamenn og fyrirtæki hafa lengi kallað eftir betri rannsóknarinnviðum og tækjabúnaði á Íslandi. Hugmyndin er að bæta þessa aðstöðu, auk þess að skapa aðstæður fyrir þverfaglegt samstarf í vísindarannsóknum og aukin tengsl við atvinnulíf og fyrirtæki. Jafnframt að bæta aðstöðu sprotafyrirtækja sem og stórra fyrirtækja til nýsköpunar.
Frá þekkingu til verðmæta
Á Vísindagörðum eru rannsóknarstofnanir, yfir 500 stúdentaíbúðir og fjöldi sprotafyrirtækja auk stærri aðila á sviði upplýsingatækni og líftækni. Til framtíðar er horft til þess að fá fyrirtæki í orku- og sjálfbærnigeirunum til að starfa á svæðinu. Öll vinnum við saman að því að umbreyta þekkingu og grunnrannsóknum í verðmæti fyrir land og þjóð.
Samfélagið í Mýrinni
Í Mýrinni, nýsköpunarsetri Vísindagarða, starfar fjöldi einyrkja, sprotafyrirtækja og klasa. Það má segja að þar spretti upp nýjar hugmyndir í hverri einustu viku. Hafðu samband ef þig vantar vinnuaðstöðu til að hrinda þinni hugmynd í framkvæmd.
Mannlíf og náttúra
Vísindagarðar eru steinsnar frá mannlífi miðborgarinnar og iða af öllu því lífi og menningu sem fylgir kröftugu háskólasamfélagi. Það er skammur gangur í náttúruparadísina í Öskjuhlíð og að sjávarsíðunni. Þá er friðlandið í Vatnsmýrinni sannkölluð vin í borginni, með óviðjafnanlegu fuglalífi og gróðri.
Svæði Vísindagarða er í þróun. Fjölmörg hús hafa risið, unnið er að hönnun Djúptæknikjarna og leit er hafin að kjölfestuleigjendum í Visku hugmyndahús. Nokkrar lóðir eru lausar til ráðstöfunar.
Fréttir
„Háskólar leika lykilhlutverk í nýsköpun í samfélögum og það að Vísindagarðarnir séu að eflast innan háskólasvæðisins mun bara hjálpa Háskólanum að sinna því hlutverki enn betur.“
— Jón Atli Benediktsson, Rektor Háskóla Íslands